Lögregla var kölluð til vegna manns í annarlegu ástandi sem var grunaður í öðru máli sem var til rannsóknar. Við afskipti lögreglu skallaði sá grunaði lögreglumann í andlitið. Ofbeldismaðurinn var í framhaldinu handtekinn og fluttur á lögreglustöð.
Maður var handtekinn utan við íbúðarhúsnæði þar sem hann hafði ruðst inn og ógnað húsráðendum. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu þangað til að hann verður í ástandi fyrir skýrslutöku.
Lögregla var kölluð til vegna umferðaróhapps þar sem ökumaður hafði stungið af frá vettvangi. Ökumaðurinn fannst skömmu síðar og er sakaður um afstungu frá slysstað ásamt því að aka án ökuréttinda. Á sama svæði var ökumaður stöðvaður í akstri, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var látinn laus eftir að dregið var úr honum blóð.
Tilkynnt var um búðaþjóf. Ekki hægt að leysa málið á vettvangi og hinn grunaði því handtekinn og vistaður í fangageymslu þangað til að hægt verður að leysa málið.