Fimm manns sváfu í skjóli lögreglu í fangageymslu lögreglum í nótt. Alvarlegasta atvik næturinnar var að ofbeldismaður ruddist óboðinn inn á heimili og otaði skærum að fólki. Fólkið sendi neyðarbeiðni á lögregluna. Dólgurinn með skærin lét sig hverfa áður en lögregla kom á staðinn. Ekki liggur fyrir hvort upplýst hafi verið hver skæramaðurinn er.
Umferðarslys varð á gatnamótum nærri miðbæ Reykjavíkur. Bifreið hafði verið ekið á hjólareiðamann. Málið er í rannsókn.
Maður var handtekinn við afskipti lögreglu þegar í ljós kom að hann var eftirlýstur í þágu rannsóknar annars máls. Hann var læstur inni í fangaklefa.
Lögregla var kölluð til vegna umferðaróhapps á svæði Kópavogslögreglu. Við rannsókn málsins kom í ljós að annað ökutækið var óskráð í kerfum lögreglu og var það því tekið úr umferð. Enginn slasaðist.