- Auglýsing -
Katrín Tanja er glæsileg í myndaþætti tímaritsins ESPN.
Crossfit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir er í hópi þess íþróttafólks sem situr fyrir í myndaþáttum sem birtast í nýjasta Body Issue ESPN tímaritsins. Um glæsilegar og smekklegar nektarmyndir er að ræða.
Myndirnar af Katrínu eru teknar á Íslandi af ljósmyndaranum Benedict Evans. Myndaþættinum fylgir svo einnig viðtal.
„Ég er svo stolt af líkama mínum og hverjum einasta vöðva líkamans, ég þurfti að hafa fyrir þessu,“ segir Katrín meðal annars.