- Auglýsing -
Hrannar Pétursson hefur verið ráðinn sem aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra.
Hrannar var aðstoðarmaður ráðherra þegar Lilja Alfreðsdóttir gegndi embætti utanríkisráðherra árin 2016-2017. Hrannar hefur starfað sjálfstætt undanfarin ár við rekstrar- og almannatengslaráðgjöf. Hann hefur áður starfað í forsætisráðuneytinu, var framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðsmála hjá Vodafone, upplýsingafulltrúi álversins í Straumsvík og fréttamaður á Ríkissjónvarpinu.
Hafþór Eide Hafþórsson er einnig aðstoðarmaður mennta- og menningarmálaráðherra.