Mánudagur 25. nóvember, 2024
-1.2 C
Reykjavik

Dularfull kona með Diegó

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Kötturinn Diegó er týndur. Hann er þekktasti köttur landsins.  Eigandinn, Sigrún Ósk Snorradóttir, greinir frá hvarfi kattarins í aðdáenddahóp kisa á Facebook í gær.  „Hann er ekki heima, við erum búinn að fara á alla staðina sem elsku Diegó heldur sig í Skeifunni og við höfum ekki fundið hann. En ef þið sjáið elsku Diegó á vappinu ekki í sínu umhverfi megi þið endilega láta mig vita svo ég geti náð í litla kallinn okkar,“ skrifar hún.

Í umræðum á síðunni segir Jónína nokkur að hún telji sig hafa séð konu fara með köttinn í strætisvagn númer 14. Hún birti mynd þessu til sönnunar.  „Mér fannst að hafi sé Diegó í 14 með einhverju manneskju hún kom inn um 18:30 hjá Grensásvegi …,“ skrifar hún.

Strætisvagninn sem dularfull kona með kött sást taka sér far með.
Skjáskot: Facebook.

Diego hefur verið fastagestur í Skeifunni þar sem hann heldur sig gjarnan til í anddyri Hagkaupa eða verslun A4. Diego hefur um árabil vakið athygli fyrir heimsóknir sínar í Skeifuna. Aðdáendasíða síða hans á Facebook heitir Spottaði Diego – og er með  um fimmtán þúsund manns.

Öryggisverðir í verslunum í Skeifunni voru í gær beðnir um að svipast eftir kettinum.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -