Vegfarendur í Beverly Hills urðu vitni að ótrúlega bíræfnum glæpi í síðustu viku en þar rændu fjórir vopnaðir menn par sem voru að labba á Rodeo Drive. Samkvæmt vitnum streittist parið á móti til að byrja með en þjófarnir náðu á endanum tveimur verðmætum veskjum sem innihéldu síma og seðla.
Greinilegt að þessi lífsreynsla fékk mikið á manninn sem var rændur því myndband sem náðist af ráninu sýnir manninn í flogakasti á meðan þjófarnir flýja en honum var komið undir læknishendur skömmu eftir atvikið.
Samkvæmt lögreglunni fannst einn sími úr ráninu stutt frá þar sem ránið átti sér stað en ekki hefur neinn verið handtekinn vegna málsins.
Beverly Hills (Rodeo Dr) – man attacked for his jewelry. Has a seizure while 4 hooded men escape pic.twitter.com/nQSlNAyhZ0
— Street People of Beverly Hills (@streetpeoplebh) November 23, 2024