Sjö manns gistu fangageymslur lögreglunnar í nótt fyrir ýmsar sakir eða ofdrykkju.
Tilkynnt um rúðubrot í fyrirtæki í miðborginni. Lögregla hélt á vettvang. Málið er í rannsókn.
Nokkrir ökumenn sektaðir. ýmist vegna farsímanotkunar undir stýri eða of hraðan akstur.
Slys varð á vinnusvæði í Kópavogi. Einn var fluttur á slysadeild með minniháttar meiðsl.
Maður leitaði skjóls hjá lögreglu eftir að hafa orðið fyrir árás. Fórnarlambið var með talsverða áverka. Maðurinn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Lögreglan rannsakar málið.
Minniháttar umferðarslys í Breiðholti dró dilk á eftir sér. Ágreiningur kom upp á milli ökumanna um atvik og þeir rifust. Lögregla stillti til friðar á vettvangi. Engin slys urðu á fólki.