Tónlistarmaðurinn Auður gaf í nótt út lagið Peningar, peningar, peningar.
Texti lagsins er beitt ádeila á neysluhyggju samtímans og skýtur tónlistarmaðurinn föstum skotum að yfirvöldum í opnunarlínum lagsins:
Ég kaupi land, fleiri fermetra,
set strák í hjólastól á götuna
Hljóðfæraleikur, texti, upptökur og hljóðblöndum var í höndum Auðuns Lútherssonar en ljósmyndina fyrir lagið gerði Ágúst Elí.
Auðunn hefur undanfarin tvö ár búið í Los Angeles og starfað þar sem tónlistarmaður og hljóðupptökustjóri. Þar hefur hann meðal annars verið hluti af beinu streymi Twitch stjörnunnar Kai Cenat og unnið tónlist fyrir listamenn á borð við Social House, Prince Ndour, Adelina, YSA og ChiChi.