Miðvikudagur 27. nóvember, 2024
4.2 C
Reykjavik

Össur hæðist að Snorra: „Hann er frekur en kjarklítill og flýr af hólmi frekar en standa á sínu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Össur Skarphéðinsson er óstöðvandi í skrifum um pólitík þessa dagana, enda stutt í kosningar. Í nýjustu Facebook-færslu sinni talar hann um Snorra Másson og Miðflokkinn.

Líffræðingurinn orðsnjalli og fyrrverandi ráðherrann Össur Skarphéðinsson hefur látið móðinn mása á Facebook að undanförnu en þar talar hann um menn og málefni en þó aðallega stjórmálin. Í nýjust færslu sinni tekur hann upp hanskann fyrir Kára Stefánsson sem stendur í ritdeilu við Snorra Másson, frambjóðanda Miðflokksins sem svaraði opnu bréfi Kára, þar sem vísindamaðurinn hæðist að Snorra og flokknum hans. Í svari sínu sagði Snorri að Kári hefði hótað sér barsmíðum og nefnir sögu sem Össur minnist á í færslu sinni.

„Fabúla um Miðflokkinn

Líklega kýs ég ekki Miðflokkinn eftir að hafa lesið grein eftir Snorra Másson frambjóðanda um samskipti hans við Kára Stefánsson. Snorri sat einn við borð á kaffihúsi, og hafði sölsað undir sig tvö borð. Annað fyrir bækur sínar og kaffi, hitt fyrir tölvu. Svo fylltist kaffihúsið af gestum, og það vantaði borð. Flestir hefðu sýnt tillitsemi og gefið eftir annað borðið. Hinn tilvonandi Miðflokksmaður sá þó enga ástæðu til þess. Þá bar að jafnaðarmanninn Kára sem bað kurteislega um að fá annað borð Snorra. Því neitaði Snorri og einu gilti Þó kaffihusið væri orðið troðfullt. Kári yggldi sig þá og gaf til kynna að hann myndi ella láta hendur skipta. Þá sá Snorri sitt óvænna og skilaði loks borðinu.“

Í lok færslunnar segir Össur frá þeirri ályktun sem megi draga af sögu Snorra:

„Setji maður samasemmerki á milli Snorra og innvolsins í Miðflokknum má kannski draga eftirfarandi ályktanir af þessari sögu: Miðflokkurinn tekur ekki tillit til annarra, hann er frekur en kjarklítill og flýr af hólmi frekar en standa á sínu. – Þurfum við nokkuð svoleiðis flokk?“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -