Sigurður Örn Brynjólfsson, grafískur hönnuður, er látinn, en hann var 77 ára gamall. Mbl.is greindi frá andláti Sigurðar en hann lést í Eistlandi. Sigurður fæddist árið 1947 í Reykjavík og voru foreldrar hans Helga Sigurðardóttir og Brynjólfur Ingólfsson. Sigurður var mikill listamaður og fór í listaskóla á Ísland og erlendis en hann var þekktur undir nafninu SÖB. Hann starfaði sem grafískur hönnuður á mörgum íslenskum auglýsingastofum en varð síðar sjálfstæður listamaður og kenndi meðal annars grafíska hönnun við Myndlista- og handíðaskólann og þótti einn besti grafíski hönnuður landsins til lengri tíma. Á tíunda áratug síðustu aldar flutti Sigurður til Eistlands og vann þar að teiknimyndum og myndasögum en hann kom að gerð hátt í 100 teiknimynda. Hann birti meðal annars myndasögur í DV og Fréttablaðinu á sínum tíma og hélt listasýningar á Íslandi og út um allan heim. Sigurður lætur eftir sig eiginkonu, fjögur börn og fjögur barnabörn.