Snorri Másson er í skotlínunni þessa dagana vegna gamalla skrifa en þau þykja sína allt aðra mynd af honum en hann hefur sýnt í kosningabaráttunni fyrir Miðflokkinn.
Þorsteinn V. Einarsson, kynjafræðingur, kennari og fyrirlesari, bendir á skrif Snorra Mássonar á Twitter frá árinu 2018 þar sem hann segir það „ekkert stórslys“ ef íslenska tungan myndi víkja fyrir öðru tungumáli. Þetta þykir einstaklega vandræðalegt þar sem Snorri hefur mikið talað fyrir því í aðdraganda kosninga að það þurfi að standa vörð um íslenskuna. Bætti Þorsteinn við í athugasemd: „Kemur ekki innra eðli frambjóðandans í ljós. Hann er svo bara femínískur woke-isti eftir allt saman. Ætli hann þurfi að axla ábyrgð gagnvart sínum flokki?“
Hér er færsla Snorra:
Haukur Bragason prófarkalesari bendir einnig á gamla færslu frá Snorra og skýtur á hann í leiðinni en athygli vakti þegar upp komst um leynifund Snorra og Bjarna Benediktssonar, rétt áður en Snorri tilkynnti að hann hyggðist bjóða sig fram fyrir Miðflokkinn. Hér má sjá færslu Hauks: