Ekki eru allir sáttir við þá niðurstöðu að Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, skaust inn á þing á elleftu stundu á kostnað Willums Þórs Willumssonar heilbrigðisráðherra sem þar með féll. Innan úr flokknum heyrist að réttast sé að krefjast endurtalningar atkvæða í Suðurkjördæmi þar sem afar mjótt var á munum og örfá atkvæði skildu milli lífs og dauða hjá formanninum.
Framsóknarflokkurinn er annars í undarlegri stöðu ef litið er til forystunnar. Vænlegustu formannsefni flokksins, Lilja Alfreðsdóttir varaformaður og Ásmundur Einar Daðason féllu af þingi og Reykjavík er þar með sem eyðimörk í flokknum. Willum Þór bættist svo á lista hinna föllnu. Flokkurinn situr eftir í sárum með formann sem þarf að axla ábyrgð sína án þess að arftaki sé í sjónmáli …