Föstudagur 13. desember, 2024
-2.2 C
Reykjavik

Guðrún ráðin bæjarstjóri Voga: „Hlakka til áframhaldandi samstarfs“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Guðrún P. Ólafsdóttur verður bæjarstjóri sveitarfélagsins Voga. Ráðning hennar var tekin fyrir á fundi bæjarráðs sveitarfélagsins í gær og tekur formlega gildi eftir bæjarstjórnarfund í næstu viku.  Guðrún hefur verið starfandi bæjarstjóri að undanförnu eftir að fyrrum bæjarstjóri lét af störfum. Hún hefur starfað hjá sveitarfélaginu síðan sumarið 2023 þegar hún var ráðin sem sviðsstjóri fjármála og stjórnsýslu sveitarfélagsins.

Guðrún P. Ólafsdóttir
Ljósmynd: Aðsend

Guðrún starfaði áður við fjármála- og rekstrarstjórnun og í fjárfestingabankastarfsemi.  Hún lauk M.sc gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands árið 2012 og Cand.Oecon gráðu í viðskiptafræði með áherslu á fjármál árið 2002 frá sama skóla.

„Ég þakka bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga það traust sem mér er sýnt með ráðningunni. Síðastliðið ár hef ég fengið að kynnast samfélaginu í Vogum sem er kyrrlátt og samheldið.  Framundan eru spennandi verkefni, meðal annars við innviðauppbyggingu samhliða fólksfjölgun til að tryggja íbúum áfram góða þjónustu. Ég hlakka til áframhaldandi samstarfs með bæjarfulltrúum, samstarfsfólki og íbúum í Sveitarfélaginu Vogum.“

Birgir Örn Ólafsson, forseti bæjarstjórnar, lýsir ánægju með ráðningu Guðrúnar og bindur vonir við farsæla samvinnu hér eftir sem hingað til. 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -