Laugardagur 18. janúar, 2025
2.7 C
Reykjavik

Hjörtur segir Alþingi verða hlusta á vilja þjóðarinnar: „Setur stórhættulegt fordæmi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hjörtur Hjartarson skrifaði um helgina áhugaverðan pistill en í honum hvetur hann Samfylkinguna, Viðreisn og Flokk fólksins til að setja stjórnarskrármálið á dagskrá en eins og frægt er orðið samþykkti þjóðin nýja stjórnarskrá í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2012 en hún hefur ekki ennþá tekið gildi.

„Umræðan í tengslum við nýafstaðnar kosningar og forsetakosningarnar í vor, til dæmis varðandi fjölda meðmælenda, forgangsröðun frambjóðenda eða röðun framboðslista, jafnt vægi atkvæða og fimm prósenta þröskuldinn, undirstrikar brýna þörf fyrir stjórnarskrárbreytingar. Að ekki sé talað um auðlindaákvæði og ákvæði til verndar náttúru landsins. Kjósendur kölluðu eftir slíkum breytingum í víðtæku lýðræðisferli eftir hrun og síðan þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá 2012,“ skrifaði Hjörtur um málið á Vísi.

Hjörtur segir að Alþingi hafi mistekist að klára málið og í raun ekki viðurkennt úrslit kosninganna. Stjórnarskrárfélagið, sem Hjörtur er meðlimur í, hefur hvatt formenn Valkyrjuflokkanna svokölluðu til að setja málið á dagskrá.

Ófrávíkjanleg regla í lýðræði

„Nýafstaðinn aðalfundur stjórnarskrárfélagsins hnykkti á þessu með einróma hvatningu:

Fundurinn hvetur næstu ríkisstjórn Íslands til að svara af stórhug ákalli kjósenda um breytingar. Ekki aðeins varðandi efnahagsmál heldur einnig lýðræði og stjórnarfar í landinu.

- Auglýsing -

Að viðurkenna úrslit kosninga er ófrávíkjanleg regla í lýðræðisríki. Að brjóta þá grundvallarreglu setur stórhættulegt fordæmi fyrir því að Alþingi geti sniðgengið úrslit kosninga og lýðræðislegan vilja meirihluta þjóðarinnar eftir geðþótta. Þannig væri til dæmis hægt að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB en virða niðurstöðuna að vettugi ef hún hentaði ekki meirihlutanum á Alþingi hverju sinni.

Alþingi hefur á 12 árum ekki auðnast að sigla stjórnarskrármálinu í höfn. Það hlýtur að teljast fullreynt. Til að rjúfa kyrrstöðuna er lagt til að Alþingi kalli saman slembivalið stjórnlagaþing almennra borgara. Þingið hefði það hlutverk að leggja lokahönd á tillögurnar sem samþykktar voru í þjóðaratkvæðagreiðslu 2012 sem grundvöllur nýrrar stjórnarskrár og fá þær Alþingi í hendur. Stjórnlagaþingið vinni með lýðræðislegar grundvallarreglur að leiðarljósi og virðingu við úrslit atkvæðagreiðslunnar, eins og nánar er líst í áskorun Stjórnarskrárfélagsins frá 23. nóvember síðastliðnum.

Stjórnarskrárfélagið áréttar kröfuna um að úrslit kosninga séu viðurkennd og að tillögur að nýrri stjórnarskrá sem yfir 2/3 hlutar kjósenda (67%) samþykktu sem grundvöll nýrrar stjórnarskrár í þjóðaratkvæðagreiðslu verði afgreiddar af heilindum og virðingu við lýðræðislega niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar.“

- Auglýsing -

Hjörtur segir að lokum að það sé löngu komið tími til að þjóðin fái það sem hún kaus og að ný ríkisstjórn hljóti að taka mið af því.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -