Háskólinn í Texas hefur ráðið Matthew McConaughey, leikara og óskarsverðlaunahafa, sem kennara á kvikmynda-, sjónvarps og útvarpssviði. Þá mun hann kenna áfanga í handritaskrifum. Mirror greinir frá.
McConaughey hefur verið gestakennari áfangans síðan 2015 og aðstoðaði meðal annars við uppsetningu á námsskránni. Þá er orðrómur um að í áfanganum verði tvær af myndum leikarans teknar fyrir: The Gentleman, sem er væntanleg 2020, og Mud sem kom út 2012.
Leikarinn sagði í yfirlýsingu að þessi áfangi hefði komið sér vel þegar hann var sjálfur í námi. „Þetta gefur mér tækifæri til að undirbúa nemendur mína betur,” bætti hann við.
McConaughey útskrifaðist með Kvikmyndagráðu frá Háskólanum í Texas árið 1993. Hann hefur leikið í yfir fimmtíu myndum síðan þá. Þar á meðal Interstellar, The Wolf of Wall Street og Dallas Buyers Club sem landaði honum Óskarsverðlaun og Golden Globe.