Rafmagnslaust er að hluta í Mýrdal eftir að bilun kom upp í jarðstreng RARIK á svæðinu. Í tilkynningu frá RARIK segir að illa hafi gengið að keyra það varaafl sem er í Vík og það sé verið að flytja færanlegt varaafl á staðinn.
„Hluti Víkur er með rafmagn en því miður gæti orðið rafmagnslaust vel fram eftir degi bæði á hluta Víkur og í Mýrdalnum. Rafmagnstruflanir gætu orðið hjá þeim sem eru með rafmagn og mælum við með að slökkt sé á raftækjum og þau tekin úr sambandi.
Bilanaleit stendur yfir en það mun ráðast af staðsetningu bilunar hversu langan tíma mun taka að gera við hana. Við biðjumst velvirðingar á þessum óþægindum og biðlum til viðskiptavina okkar að fara sparlega með rafmagn meðan þetta ástand varir,“ segir í tilkynningunni.