Í dag segir spáin vestlægr átt; já,spáir víða 8 til 15 metrum á sekúndu og það verður él.
Þurrt verður austan til á landinu. Það mun svo lægja eftir hádegi.
Frost verður á bilinu 0 til 5 stig.
Við suður- og suðvesturströndina er reiknað með hita í kringum frostmarkið.
Á morgun verður hæg suðvestlæg á klakanum; áfram spáir éli sem og vægu frosti.
Það verður aftur á móti nokkur austan strekkingur á Norðvesturlandi.
Útlit er fyrir þurrt og bjart veður á Norðaustur- og Austurlandi, en þar herðir á frosti.
Áfram er útlit fyrir tiltölulega hægan vind á þriðjudag.
Gert er ráð fyrir éljagangi um vestanvert landið en að veðrið verði yfirleitt þurrt fyrir austan.