Nóttin var róleg hjá lögreglumönnum höfuðborgarsvæðisins. Afbrotamenn voru fáir á ferli. Fimm manns fengu gistingu í fangaklefum lögreglunnar fyrir fremur litlar sakir og sumir vegna þess að ástand þeirra var bágborið.
Lögregla var kölluð til vegna innbrots í heimahús. Þjófurinn hafði á brott með sér muni. Hann fannst skömmu síðar og var handtekinn og læstur inni í þágu rannsóknar málsins.
Ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.
Hafnarfjarðarlögregla var kölluð til vegna búðaþjófs. Málið afgreitt á vettvangi.
Skemmdarverk var unnið á útidyrahurð í fjölbýlishúsi. Óljóst með gerandann.
Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni og hafnaði á ljósastaur. Þegar þetta er ritað er ekki talið að neinn hafi slasast í óhappinu.
Lögregla kölluð til vegna aðila sem var að stela gjafakortum í verslunarmiðstöð.
Tilkynnt um mann sem kvaðst vera vopnaður og ruddist inn í íbúð í hverfinu. Lögregla kom á staðinn og handtók aðilann sem reyndist ekki vera vopnaður en málið er í rannsókn.