Föstudagur 31. janúar, 2025
-1.2 C
Reykjavik

Framsókn kærir yfirkjörsókn í Suðvesturkjördæmi: „Meira get ég ekki sagt þér“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Framsóknarflokkurinn hefur kært yfirkjörstjórn í Suðvesturkjördæmi.

Samkvæmt frétt mbl.is hefur landskjörstjórn borist kæra frá Framsóknarflokknum í Suðvesturkjördæmi en kæran barst í gær. Það staðfestir framkvæmdarstjóri landskjörstjórnar, Ástríður Jóhannsdóttir.

Lands­kjör­stjórn hef­ur borist kæra frá Fram­sókn­ar­flokkn­um í Suðvest­ur­kjör­dæmi.

Í samtali við mbl.is segir Ástríður að landskjörstjórn ætli sér ekki að greina frá efni kærunnar eins og staðan er í dag. Í loks dags rennur kærufresturinn út.

„Svo er okk­ar hlut­verk að gefa um­sögn til Alþing­is um efni kær­unn­ar í kjöl­farið,“ seg­ir hún í samtali við mbl.is.

Það var hæstaréttarlögmaðurinn Gestur Jónsson sem sendi inn kæruna fyrir hönd Framsóknar í Suðvesturkjördæmi en hann segir kæruna snúast um viðbrögð yfirkjörstjórnar Suðvesturkjördæmis við umkvörtunum umboðsmanna Framsóknar.

- Auglýsing -

„Meira get ég ekki sagt þér.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -