Miðvikudagur 18. desember, 2024
-1.2 C
Reykjavik

Skyndilegt andlát ungs fréttaþular mikið áfall: „Minningar mínar um Ana munu aldrei dofna“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fréttaþulurinn Ana Orsini, sem starfaði fyrir staðbundna miðilinn KOLD-TV sem var samstarfsaðili CBS, lést skyndilega á dögunum, aðeins 28 ára að aldri. Samstarfsmenn hennar deildu sorgarfréttunum í beinni útsendingu þann 16. desember. Dánarorsök Orsini var heilablóðfall vegna æðagúlps, samkvæmt miðlinum.

„Sorglegar fréttir sem við höfuð að deila með ykkur,“ sagði fréttaþulurinn Tyler Butler við áhorfendur í útsendingunni. „Ástkær vinkona okkar og meðstjórnandi, Ana Orsini lést óvænt í síðustu viku. Ana hafði verið hér á 13 News síðan í júní 2023,“ hélt Carsyn Currier, meðþulur Butlers, áfram og felldi tár, „og við erum niðurbrotin yfir þessum missi.

Þegar Butler rétti Currier hughreystandi hönd, varpaði hann ljósi á hressandi eðli Orsini.

„Við fengum tækifæri til að vinna með henni á hverjum degi,“ sagði hann, „Og við viljum að þið vitir að það sem þú sást í sjónvarpinu með henni, hina fyndnu, klikkuðu manneskjuna sem hún var,  hún var alveg eins utan myndavélarinnar og jafnvel meira þannig“

Orsini hóf feril sinn árið 2018 eftir útskrift frá Texas A&M háskólanum, þegar hún tók við starfi sem fréttaþulur og blaðamaður í Lubbock, Texas, samkvæmt ferilskrá hennar. Orsini eyddi síðan þremur árum sem morgun- og hádegisfréttaþulur í Medford, Oregon, áður en hún gekk til liðs við KOLD-TV í Tuscon, Arizona.

Butler hélt áfram að minnast Orsini á samfélagsmiðlum og lýsti henni sem „náttúruafli“.

- Auglýsing -

„Ég held áfram að hugsa um hvernig ég gerði stundum grín að sjálfum mér,“ rifjaði hann upp í Facebook-færslu í gær, 17. desember, „Og hún svaraði: „Hey! Ekki tala svona um vin minn!“. Einlæg umhyggja hennar fyrir öllum í kringum hana verður saknað.“

Currier skrifaði einnig einlæg skilaboð um Orsini, sem hún kallaði „eina af bestu vinum“ sínum.

„Að vakna um miðja nótt til að fara í vinnuna er alltaf krefjandi,“ skrifaði Currier á Instagram, „En að vita að ég væri að fara að vinna með Ana gerði þetta miklu auðveldara. Hvort sem hún var að dansa í kringum leikmyndina eða að fá okkur öll til að hlæja, þá voru allir dagar með Ana ævintýri.“ Bætti hún við að lokum: „Tíminn kann að líða, en minningar mínar um Ana munu aldrei dofna. Ég elska þig að eilífu, Ana.“

- Auglýsing -

Hér fyrir neðan má sjá samstarfsfólk og vini Önu minnast hennar:

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -