Neytendastofu hafa borist ábendingar vegna notkunar erlendra tungumála í markaðssetningu í miðbæ Reykjavíkur segir í tilkynningunni frá stofnuninni. Af því tilefni og vegna áherslu sem stofnunin hefur haft á að fylgja eftir ábendingum um tungumálanotkun var ákveðið að byrja á að skoða matseðla og markaðsefni veitingastaða í miðbænum.
„Tekin var skoðun á 83 veitingastöðum og kom í ljós að aðeins tveir höfðu engan matseðil við inngöngudyr. Algengt var að matseðill væri birtur á íslensku og erlendu tungumáli en þó voru gerðar athugasemdir við að 34 veitingastaðir birtu matseðil og annað kynningarefni bara á ensku. Þessu til viðbótar voru gerðar athugasemdir við að sex veitingastaðir sem höfðu matseðla sýnilega á íslensku birtu annað kynningarefni eingöngu á ensku. Í síðastnefnda tilvikinu sendi Neytendastofa veitingastöðunum leiðbeiningar um skyldu til að notast við íslensku í markaðsefni,“ segir Neytendastofa um athugun sína.
Síðar var farið aðra ferð á staðina sem ekki stóðu sig í stykkinu og höfðu þá 18 staðir gert breytingar sem réttar þóttu. Neytendastofa mun nú taka upp formlega málsmeðferð gagnvart þeim stöðum sem ekki brugðust við athugasemdum stofnunarinnar.