Fáir fengu gistungu hjá lögreglunni í nótt eða aðeins tveir. Talsverður óróleiki var þó meðal nátthrafna og ölvun hjá mörgum. Fæstir voru í jólaskapi.
Tilkynnt var um eld í heimahúsi. Í ljós kom að pottur á eldavél var að brenna yfir. Ekkert tjón varð og málið leystist farsællega.
Brotist var inn verslun. Ekki vitað hvað var tekið en gerandinn þekkist á upptökum. Málið er í rannsókn.
Ökumaður var stöðvaður í akstri grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Á svipuðum slóðum var lögreglu tilkynn um „víðáttuölvaðan aðila“ sem lá í blómabeði. Sökum ástands var maðurinn vistaður í fangaklefa hvar hann mun hvíla þar til af honum rennur víman.
Tilkynnt var um mann í miðbænum sem var ógnandi. Sá var búinn að kasta skó í annan og hugsanlega með hníf. Lögregla handtók manninn og flutti hann á lögreglustöð. Enginn hnífur reyndist vera á vettvangi en aðilinn mjög æstur og ölvaður. Hann var vistaður í fangaklefa vegna málsins.
Hafnarfjarðarlögreglu var tilkynnt um umferðaróhapp þar sem ekið var utan í bifreið. Gerandi lét sig hins vegar hverfa af vettvangi. Á sama svæði var tilkynnt um eignaspjöll á hraðbanka. Þegar upptökur voru skoðaðar kom í ljós að reynt hefði verið að ræna úr hraðbankanum sem stóðst áhlaupið.
Maður sem vann eignaspjöll í sameign neitaði að gefa upp nafn og kennitölu. Hann var mjög ölvaður og skertur af viti.
Rifrildi gaus upp á samkomustað. Annar deiluðilinn tók upp hníf og starfsfólk kallaði því eftir lögreglu. Þegar lögregla kom á staðinn voru allir orðnir rólegir. Hnífamaðurinn verður kærður fyrir brot á vopnalögum.