Fjölmiðlakonan Marta María Winkel Jónasdóttir gefur lítið fyrir þá gagnrýni sem hún fékk eftir að hafa sett út á klæðnað Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, á máta sem mörgum fannst ósmekklegt og ósæmandi blaðamanni.
Það má þó vera að Marta hafa bakað sér enn meiri vandræði með nýjustu ummælum sínum um málið en í Spursmálum sagði hún gagnrýnendur sína vera hluti af þöggunarkynslóð sem sópaði öllu undir teppi og nefndi áfengisneyslu fjölskyldumeðlima sem dæmi. Miðað við orð Mörtu í þættinum má búast við að hún haldi uppteknum hætti áfram í nafni tjáningarfrelsis.
Stundum er að talað um að blaðamenn líti stórt á sig og sem einhvers konar fánabera tjáningar en Marta ætti að vita betur en bera þessa hluti saman …