Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 4. febrúar, að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Krafðist lögreglan þess í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás í húsi á Kjalarnesi á nýársnótt.
Í árásinni slösuðust tveir alvarlega en um hnífaárás var að ræða. Hlaut annar hinna særðu lífshættulega áverka. Maðurinn, sem nú hefur verið gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, var handtekinn á vettvangi.
Rannsókn málsins miðar vel, samkvæmt tilkynningu lögreglu.