Í nótt var nokkrum vegum lokað vegna veðurs og enn fleiri verða á óvissustigi fram eftir morgni. Í gildi eru gular viðvarandi um allt land og spáir Veðurstofan versnandi veðri í nótt með norðaustan hvassviðri og hríð.
Í gærkvöldi sagði Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við RÚV að með morgninum myndi veðrið skána sunnan- og austanlands en að áfram yrði þó hvasst um norðvestanvert landið.
Þeir sem ætla sér að keyra í dag eru hvattir til þess að kanna aðstæður afar vel áður en lagt er af stað en það er hægt að gera á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.is.
Samkvæmt upplýsingum var eftirfarandi vegir lokað í nótt:
- Fjarðarheiði
- Fagridalur
- Vopnafjarðarheiði
- Möðrudalsöræfi
- Mývatnsöræfi
Fyrripart dagsins í dag verða fjölmargir vegir settir á óvissustig en þeim gæti verið lokað með litlum fyrirfvara. Klukkan sex í morgun voru vegir um Fróðárheiði, Klettsháls og Dynjandisheiði, auk Siglufjarðarvegar, settir á óvssustig.
Vegir um Steingrímsfjarðarheiði og Þröskulda voru einnig settir á óvissustig klukkan átta í morgun. Frá hádegi verða svo vegir um Vatnaleið, Svínadal, Bröttubrekku og Höltavörðuheiði einnig á óvissustigi.