Nokkuð óvenjulegur viðskiptavinur mætti á hárgreiðslustofuna.
Starfsmenn og kúnnar rakarastofu í Nanyang borg í Kína brá heldur betur fyrr í vikunni þegar stór belja óð inn og forðuðu allir inn á stofunni sér út. Kúin átti þó ekki tíma í klippingu heldur hafði hún sloppið frá eiganda sínum sem var að reyna koma henni upp í flutningabíl. Eigandinn segir að beljan hafi orðið smá taugaveikluð og hlaupið frá honum vegna þess.
Í myndbandi sem birt hefur verið sést beljan vera skoða sig vel og vandlega í spegil en hún hefur mjög verið að velta sér fyrir hvort hún ætti að breyta hárgreiðslu sinni.
Kínveskir fjölmiðlar hafa greint frá því að eigandinn beljunar hafi verið sektaður um rúmar 19 þúsund krónur fyrir atvikið og að hárgreiðslustofan sé búin að opna aftur.