Fimmtudagur 30. janúar, 2025
1.8 C
Reykjavik

Sveinn Andri stríðir Áslaugu Örnu: „Hún hlýtur að vera sjálfri sér samkvæm“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sveinn Andri Sveinsson skýtur föstum skotum á Sjálfstæðisflokkinn í nýrri Facebook-færslu.

Stjörnulögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson stríðir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur sem fór mikinn í fjölmiðlum þegar í ljós kom að Flokkur fólksins hafði þegið himinháa styrki án þess að vera löglega skráður sem stjórnmálaflokkur. Nú er hins vegar komið í ljós að fleiri flokkar, og þar með talinn Sjálfstæðisflokkurinn, höfðu einnig þegið styrki án þess að vera rétt skráðir í kerfinu. Og það hlakkar í Sveini Andra og sjálf sagt fleirum.

Í færslunni segir Sveinn Andri að Áslaug hljóti að vilja greiða styrkinn til baka, rétt eins og hún krefur Ingu Sæland og flokkssystkini hennar um. Svo getur hann ekki stillt sig um að spyrja Sjálfstæðisflokkinn að lokum um fræga styrki sem flokkurinn fékk árið 2006.

Hér má sjá færsluna í heild sinni, en hana birti Sveinn Andri með frétt um styrktarmál Sjálfstæðisflokksins:

„Úpps!

Tilvonandi formaður Sjálfstæðisflokksins var hörð á því að Flokkur fólksins ætti að endurgreiða alla styrki.
Hún hlýtur að vera sjálfri sér samkvæm og telja það sama eiga við um Sjálfstæðisflokkinn. Eða hvað?
Á meðan ég man, er Sjálfstæðisflokkurinn búinn að endurgreiða styrkina frá FL-group og Landsbankanum síðan 2006?“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -