Tveir starfsmenn grunnskóla handteknir eftir vafasamt partí.
Skólastjóri Roosevelt grunnskóla í Flórída var handtekinn eftir að komst upp að skólastjórinn leyfði börnum að halda teiti á heimili hans. Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs munu yfir 100 börn hafa verið í partíinu. Lögreglan og sjúkralið mætti í teitið og þurfti eitt barn á aðstoð að halda eftir að hafa drukkið of mikið áfengi.
Samkvæmt börnum sem mættu í partíið reyktu mörg börn gras og slógust milli þess að þau drukku áfengi.
Skólastjórinn heitir Elizabeth Hill-Brodigan en hún var ekki í teitinu þegar lögregla kom á vettvang en hún mætti heim til sín skömmu eftir að lögreglan var komin á staðinn. Hún var síðar handtekin ásamt Karly Anderson en hún er kennari í grunnskólanum og var stödd í teitinu með börnunum þegar lögreglan mætti.
Þær hafa báðar verið ákærðar fyrir sinn þátt í partíinu.