Fimmtudagur 30. janúar, 2025
-0.2 C
Reykjavik

Óhugnanleg skilaboð karlmanns til 15 ára drengs: „Langar að dópa þig upp“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Óhugnanleg skilaboð fullorðins karlmanns til 15 ára drengs voru birt í Facebook-hópnum Stöndum Saman – Verndum Börnin, en þar eru um 34 þúsund meðlimir. Karlmaðurinn er í skilaboðunum að klæmast við drenginn og bjóða honum kynlíf og eiturlyf.

Samkvæmt frétt Nútímans um málið er drengurinn sagður vera fæddur 2009 og hafa verið 15 ára þegar skjáskotin af skilaboðunum voru tekin. Fram kemur í upprunalegu færslunni í hópnum að maðurinn hafi verið 36 ára þegar umrædd samskipti fóru fram.

Svo virðist sem samskipti þeirra hafi farið fram á stefnumótaforritinu Grindr en karlmaðurinn biður drenginn um að færa sig yfir á samskiptaforritið Snapchat, sem Nútíminn hefur sagt frá að sé vinsælt meðal þeirra sem vilja komast í samband við ólögráða einstaklinga. Þá hefur verið sagt frá hópum undanfarið í fjölmiðlum sem beita tálbeitum til þess að nappa fullorðna við þessa iðju. Ekki er vitað hvort um sé að ræða tálbeitu í þessu tilfelli en sá sem birti skjáskotin í hópnum staðhæfir að drengurinn hafi verið 15 ára þegar samskiptin áttu sér stað.

Tekið skal fram að samkvæmt almennum hegningarlögum er það lögbrot að hafa samræði eða önnur kynferðismök við barn sem er yngra en 15 ára. Slíkt athæfi varðar fangelsi allt að 16 árum. En ef einhver tælir ungmenni með blekkingum, gjöfum eða á annan hátt til samræðis er aldursviðmiðið fjórum ára hærra, eða 18 ár. Við þess háttar broti er allt að 4 ára fangelsisvist. Það sama á við um einstakling sem greiðir fyrir samræði eða önnur kynferðismök. Allt að tveggja ára fangelsi er við slíku, ef sá sem fær borgunina er 18 ára eða yngri.

Hér fyrir neðan má sjá skjáskotin en viðkvæmir lesendur eru varaðir við skilaboðunum sem þar sjást en þau eru mjög gróf.

Í skilaboðunum má sjá að maðurinn reynir ákaft að fá drenginn til sín til að stunda með honum kynlíf og spyr hann hvort hann neyti eiturlyfja. Á einum stað segir hann „Mig langar að dópa þig upp og ríða eins mér langar.“ Einnig spyr hann einnig hvort drengurinn sé með reynslu af eldri mönnum og bíður honum aukreitis í trekant. Þá segir maðurinn drengnum að „beila á skólanum og koma að ríða“ en drengurinn hafði sagt honum að hann sé í 10. bekk.

- Auglýsing -

Hér má sjá umrædd skjáskot en þau eru öll fengin frá Nútímanum:

 

Skjáskot frá Nútímanum.


- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -