Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur beðist afsökunar á að hafa hringt í skólameistara Borgholtsskóla fyrir hönd barnabarns síns en Vísir greindi frá símtalinu. Símtalið er sagt hafa snúist um týnt skópar barnabarns Ingu en hún mun hafa verið mjög ósátt við að ekki væri búið að finna skónna.
Samkvæmt heimildum Vísis minnti Inga skólameistarann á að hún hefði tengsl inn í lögregluna. Ársæli Guðmundssyni skólameistara mun hafa blöskrað símtalið svo mikið að hann ræddi það við marga starfsmenn skólans.
Í afsökunarbeiðni Ingu neitar hún því að hafa minnst á lögregluna í símtalinu. Hún sagði við Vísi að hvatvísi hafa stjórnað för sinni og hún hefði betur talið upp á 86 áður en hún hringdi.
Mögulega spillt ráðning
Ársæll Guðmundsson komst sjálfur í fréttirnar fyrir tæpum áratug þegar hann var ráðinn skólameistari Borgarholtsskóla en ráðning hans var mjög umdeild á sínum tíma. Ragnar Þór Pétursson, sem þá var fulltrúi menntamálaráðherra í skólanefnd Borgarholtsskóla, sagði ráðningu Ársæls lykta af spillingu en hann hafði starfað sem verkefnastjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu sem var undir stjórn Illuga Gunnarssonar áður en hann var ráðinn í stöðu skólameistara.
Samkvæmt Ragnari voru allir nefndarmenn sammála um að einn umsækjandi um stöðuna væri hæfastur en það hafi ekki verið Ársæll.
„Þvert á móti voru fleiri en einn umsækjandi að mínu mati augljóslega frambærilegri. Ég held að Ársæll Guðmundsson hafi verið ráðinn af pólitískum ástæðum. Ég treysti ekki því ferli sem fram fór,“ skrifaði Ragnar Þór. „Ég held að málið allt angi af spillingu.“