Fimmtudagur 30. janúar, 2025
1.8 C
Reykjavik

Skýtur föstum skotum á Morgunblaðið: „Segðu nei takk“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Björn Birgisson gefur Facebook-vinum sínum ráð ef ske kynni að Morgunblaðið óskaði eftir viðtali.

Samfélagsrýnirinn og fyrrverandi ritstjórinn Björn Birgisson skrifaði færslu í dag þar sem hann skýtur föstum skotum á Morgunblaðið, sem hefur að undanförnu fjallað af áfergju um styrkjamál Flokk fólksins en nú hefur komið í ljós að fleiri flokkar hafi þegið styrki án þess að fara í einu og öllu eftir settum reglum um slíkt, þar á meðal Sjálfstæðisflokkurinn. Ritstjórinn gamli gefur lesendum sínum ráð ef ske kynni að Morgunblaðið hefði samband og bæði um viðtal. Hér fyrir neðan má lesa færsluna:

„Fjölmiðlar sem hiklaust birta falsfréttir ef það hentar þeim, út frá pólitík og hagsmunagæslu, birta að sjálfsögðu líka raunverulegar fréttir og fara rétt með þær – ef það hentar þeim.

Mín ráðlegging er þessi.
Ef Morgunblaðið vill hafa tal af þér þá gerðu annað af tvennu.
Segðu nei takk.
Ef ekki, þá óskaðu eftir skriflegum spurningum til að svara með þeim tilmælum að svör þín verði orðrétt birt – annars ekki.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -