Fimmtudagur 30. janúar, 2025
-0.2 C
Reykjavik

Mogginn vísar á heimili Ingu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Inga Sæland, ráðherra og formaður Flokks fólksins, er nýr skotspónn Morgunblaðins. Blaðið hefur farið hamförum í málefnum Ingu og aðrir fjölmiðlar elta í sumum tilvikum í trausti þess að rétt sé farið með.

Styrkjamál Flokks fólksins hefur verið fyrirferðamikið hjá blaðinu sem hefur síður fjallað um að aðrir flokkar hafa heldur ekki uppfyllt formsatriði varðandi styrki. Þá elti Mogginn frétt Kolbeins Tuma Daðasonar, fréttastjóra Vísis, þar sem því var lýst að Inga hefði haft í hótunum við skólastjóra Borgarholtsskóla vegna skópars og nefnt áhrif sín hjá lögreglunni. Ekkert er staðfest um hótanir og hefur skólameistarinn neitað opinberlega að tjá sig um efni einkasímtalsins.

Nýjasta útspil Davíðs Oddssonar, ritstjóra Morgunblaðsins, í málefnum Ingu er að segja frá fasteignakaupum hennar á Ólafsfirði og í Reykjavík og beinlínis að vísa fólki á heimili hennar, hver sem tilgangurinn er. Í þessu samhengi er áhugavert að Mogginn hefur ekki gert mikið af því að benda á brask Bjarna Benediktssonar, fráfarandi formanns Sjálfstæðisflokksins, eða heimili hans og annarra Sjálfstæðismanna.

Samfélagsrýnirinn Jón Viðar Jónsson bendir á taumlausan hamagang og stjórnlausa óvild ritstjórnar Moggans gegn öllu sem varðar nýja ríkisstjórn sem blasi við öllum sem sjá blaðið nokkuð reglulega. Hann ávarpar ritstjórnina beint á Facebook.

„Passið ykkur, þið á Mogganum! Ykkur tókst ekki að gera formann Vinstri grænna að forseta – það er ekki víst að þessi leiðangur fari betur! Endilega læra af mistökunum – líka þið!!“.
Víst er að margir eru sammála Jóni Viðari um að nóg sé komið og sjá þá leið helst færa að sniðganga blaðið …

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -