Leikarinn Tom Welling var handtekinn á sunnudagsnótt fyrir ölvunarakstur en hann er þekktastur fyrir leik sem Clark Kent í Smallville-þáttunum sem voru vinsælir snemma á 21. öldinni. Clark Kent er jarðarnafn Superman.
Handtakan fór fram á bílastæði Arby’s í Yreka í Kaliforníu en eiginkona hins 47 ára gamla leikara var að halda upp á afmælið sitt á sunnudaginn en þau eiga saman tvö börn. Welling er ekki eini leikarinn úr Smallville sem hefur lent í vandræðum með lögregluna en Allison Mack, meðleikkona Welling í Smallville, var í mörg ár einn af höfuðpaurum kynlífssértrúðarsöfnuðinum NXIVM sen hneppti konur í þrældóm.
Óvíst er hvort málið muni hafa mikil áhrif á feril Welling en hann hefur lítið leikið undanfarin ár eftir að hafa gert góð hluti í Smalleville, Cheaper by Dozens myndunum og The Fog snemma á ferlinum.