Björn Leví Gunnarsson fagnar afsökunarbeiðni Ingu Sæland og spyr hvort ekki hefði verið gott að fá nokkrar slíkar á síðasta kjörtímabili.
Píratinn Björn Leví Gunnarsson, sem lengi hefur verið þyrnir í augum Sjálfstæðismanna þar sem hann hefur verið duglegur að benda á eitt og annað sem hann telur ámælisvert hjá flokknum og er ekki að sjá að hann sé hættur, þrátt fyrir að hafa fallið af þingi í síðustu kosningum. Björn skrifaði stutta en beitta færslu á Facebook, við skjáskot af frétt Mannlífs um afsökunarbeiðni Ingu Sælands vegna símtals hennar við skólastjóra barnabarns hennar. Skýtur hann fast á sinn forna fjandmann, Bjarna Benediktsson en færsluna má sjá í heild sinni hér fyrir neðan:
„Pælið í því hvað er einfalt að biðjast afsökunar. Hefði ekki verið betra að fá nokkrar svoleiðis á síðasta kjörtímabili fyrir miklu alvarlegri hluti en þetta símtal? Ég meina td. að selja pabba sínum hlut í ríkisbanka … það er svona landsréttarstigs alvarleiki. Engin afsökun þar.