Á morgun skellur suðaustanhríðarveður á landið en er einungis forsmekkurinn af því sem koma skal um helgina.
Að sögn veðurfræðings á Veðurstofunni er von á veðravíti um helgina en búið er að gefa út gula viðvörun fyrir allt landið.
„Þetta er byrjunin á þessu veðravíti um helgina,“ segir Þorsteinn V. Jónsson veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, um veðrið fram undan, í samtali við RÚV.
Gular viðvaranir hafa verið gefnar út vegna suðaustanhríðaveðurs með snjókomu, skafrenningi og lélegu skyggni á Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði og Miðhálendinu á morgun en gula viðvörunin sem nær yfir allt landið frá föstudegi fram á sunnudag, er vegna sunnanstorms, asahláku og úrhellisrigningar.
Búast má við erfiðum akstursskilyrðum í skafrenningi í fyrramálið, þar sem er lausamjög, varar Vegagerðin við, til dæmis suðvestantil. Þá verður víða hált meðan snjó og klaka leysir á meðan það snjóar til fjalla og því munu akstursskilyrði versna enn frekar á heiðarvegum.
Að sögn Þorsteins verður veðrið ekkert sérstaklega skemmtilegt á morgun, hríðaveður og hálka.
„Það hlánar við ströndina á morgun en nær ekki neinni hláku að kalla. Þetta veður er ekkert sérstakt en það getur orðið hríðarveður á heiðum og uppsveitum á Suðurlandi, á Snæfellsnesi og Holtavörðuheiði. Eins er hitinn að nálgast frostmark og hálka á vegum.“
Segir hann ennfremur að hver lægðin komi upp að landinu á fætur annarri og að á föstudagskvöld muni hlýna töluvert. „Það verður talsverð rigning á laugardag og þá erum við að tala um hláku. Það er grimm og djúp lægð að koma á sunnudagskvöld og verður bálhvasst.“
Að sögn Þorsteins má búast við að appelsínugular veðurviðvaranir verði gefnar út á sunnudag, gangi þessar spár eftir. Framundan séu mikiir umhleypingar með lægðaganginum og ekki megi búast við að það breytist í fyrstu viku febrúarmánaðar.
„Morgundagurinn verður kannski ekki svo slæmur heldur smá forsmekkur að því sem koma skal um helgina,“ segir Þorsteinn í samtali við RÚV.
Þorsteinn bendir fólki á a ðhreinsa frá niðurföllum og passa að vatnið eigi greiða leið svo ekki fari að flæða inn í hús en að töluverð hætta verði á því í borginni og á Suður- og Vesturlandi. Það muni hlýna einnig á Norður- og Austurlandi en að ekki muni verða eins mikil úrkoma þar.
Að lokum hvetur Þorsteinn fólk til að nýta daginn í dag til útiveru. „Þetta er síðasti góði skíðadagurinn í bili.“