Fimmtudagur 30. janúar, 2025
0.8 C
Reykjavik

Berta Dís prinsessa búin að fæða: „Hún er pínulítil og algjörlega fullkomin“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Tilkynnt hefur verið að Berta Dís (e. Beatrice) prinsessa hafi fætt sitt annað barn, þriðja barn eiginmans síns, Edoardo Mapelli Mozzi en saman ala þau upp systkinin Sönnu og Úlf.

Barnabarn Elísabetar drottningar, 36 ára, og eiginmaður hennar, 40, tóku á móti stúlku sem hlaut nafnið Aþena en hún fæddist nokkrum vikum fyrir tímann. Nýburinn er litla systir þriggja ára dóttur hjónanna, Sönnu og sonar Mapelli Mozzi og stjúpsonar Beatrice, hinn átta ára Úlfs. Barnið, sem ekki hlýtur prinsessutign. fæðist í 11. sæti í röðinni að hásætinu, en yngri systir Bertu Dísar prinsessu Evgenia (e. Eugenie) færist niður í 12. sæti.

Það er ljóst að Berta Dís og vikugömul dóttir hennar, Aþena, séu heilbrigðar og líði vel þrátt fyrir að barnið hafi komið í heiminn snemma og báðar hafa yfirgefið sjúkrahús og eru heima. Hún átti að fæða snemma vors en í desember var henni ráðlagt af læknum að ferðast ekki langar leiðir.

Í yfirlýsingu frá Buckingham höll sagði: „Konunglega hátign hennar, Berta Dís prinsessa og Edoardo Mapelli Mozzi eru ánægð með að tilkynna örugga komu dóttur sinnar, Aþenu Elísabetar Rós Mapelli Mozzi, fædd miðvikudaginn 22. janúar, klukkan 12:57, á Chelsea og Westminster-sjúkrahúsinu í Lundúnum.

„Barnið vó fjögur pund og fimm únsur. Hátign þeirra konungur og drottning og aðrir meðlimir konungsfjölskyldunnar hafa allir verið upplýstir og eru ánægðir með fréttirnar.“

Eiginmaður Bertu Dísar, Edoardo, birti fallega færslu um nýju dóttur sína á Instagram og sagði hana „pínulítla og algjörlega fullkomna“. Í færslunni birti hann ljósmynd af Aþenu vafinni inn í teppi: „Aþena Elísabet Rós Mapelli Mozzi. Við tókum á móti barninu Aþenu í líf okkar í síðustu viku. Hún er pínulítil og algjörlega fullkomin. Við erum öll (þar á meðal Úlfur og Sanna) þegar algjörlega hugfangin af henni. Hjörtu okkar eru yfirfull af ást til þín, elsku Aþena. Frábærar þakkir frá mér og konunni minni fær allt frábæra starfsfólkið á Chelsea og Westminster-sjúkrahúsinu fyrir einstaka umönnun og stuðning á þessum ótrúlega sérstaka tíma.“ Systir Bertu Dísar, Evgenia, fagnaði einnig nýburanum með því að skrifa „Velkomin litla stelpa“ og deila mynd Mapelli Mozzi af Aþenu, vafin í bleiku teppi á Instagram Stories.

- Auglýsing -

Berta Dís er elsta dóttir Andrésar, hertogans af Jórvík og fyrrum eiginkonu hans, Söru Ferguson en Aþena er fjórða barnabarn þeirra.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -