Fimmtudagur 30. janúar, 2025
0.8 C
Reykjavik

Óviti renndi vörubíl niður bratta brekku – Skreið sjálfur upp úr skurðinum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þriggja ára drengur komst í fréttirnar í september árið 1975 þegar hann renndi vörubíl föður síns niður brekku og ofan í skurð.

Það var í september árið 1975 að þriggja ára pjakkur klifraði upp á vörubifreið föður síns sem stóð á hlaði bóndabæjar í Borgarfirði. Ekki vildi betur til en svo að drengnum tókst að ýta gírstöngina í hlutlausann og af stað fór vörubíllinn, niður bratta brekku. Endaði ferðalagið ofan í skurði skammt frá en fyrir ótrúlega heppni varð piltinum ekki meint af ævintýrinu. Í frétt Dagblaðsins, skammar blaðamaður eiganda vörubílsins fyrir að gæta ekki betur að bíl sínum, því mun verra hefði getað gerst en raun bar vitni.

Hér má lesa frásögn Dagblaðsins:

Óviti renndi bíl niður bratta brekku

Þriggja ára drengur prílaði upp í vörubíl pabba síns og tókst að hreyfa girstöngina í hlutlausan, þar sem bíllinn stóð á hlaði bæjar nokkurs í Borgarfirði. Rann bíllinn af stað niður bratta brekku, sem lá niður frá hlaðinu og hafnaði í skurði, skammt frá. Svo mildilega tókst til, að litli drengurinn komst af eigin rammleik út úr bílnum og varð fólk alls hugar fegið, þegar snáðinn kom hlaupandi á móti börnum á bænum, sem höfðu séð óhappið og tóku þegar til fótanna, er þau höfðu látið fullorðna vita, hvað gerzt hafði. Þannig hagar til, að hefði billinn runnið niður mjög bratta og langa heimreiðina, hefði hann komizt á mikla ferð. Óvist er, hvernig þá hefði endað þessi ótímabæra bilferð Er full ástæða til að vara einu sinni enn við þvi, að vélar eða tæki, sem farið geta af stað við jafnvel smábarnapríl, séu skilin eftir aðgengileg fyrir óvita. Allir gleðjast yfir því, þegar svona vel er sloppið, en augljóst er, hversu stutt er oft i mikla ógæfu, þegar ekki er gætt nauðsynlegrar varkárni. 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -