Eldra fólk brá heldur betur í brún þegar það snéri til baka eftir að Lionsklúbburinn á Reyðarfirði bauð þeim í ferð upp á Hérað. Á heimleiðinni stoppaði hópurinn við sæluhúsið á Fagradag en þar blasti við þeim fjórir kviknaktir karlmenn.
Dagblaðið fjallaði um spaugilega hegðun nokkurra ungra manna um verslunarmannahelgina 1975 en þeir hefðu gengið um Reyðarfjörð algjörlega berrassaðir en meðal annars versluðu þeir í sjoppu í bænum en ekki fylgdi sögunni hvar þeir geymdu peningana sína. Ökumaður drengjanna var ung stúlka en hún var víst kappklædd. Lögreglan vísaði fólkinu frá Reyðarfirði en síðast var einn hinna nöktu drengja tekinn ölvaður við akstur en þá var hann kominn í föt.
Hér má lesa hina spaugilegu frétt Dagblaðsins:
FJÓRIR STRIPLINGAR Á FERÐ
– ökumaður kappklœdd stúlka
Um verzlunarmannahelgina bauð Lionsklúbburinn á Reyðarfirði gömlu fólki i ferðalag upp á Hérað. Í bakaleiðinni var numið staðar við sæluhúsið á Fagradal. Þá mætti bæði ljónum og öldruðum óvenjuleg sjón: Fjórir ungir menn voru þar að leik gersamlega kviknaktir. Piltar þessir höfðu komið niður á Reyðarfjörð og opinberað þar nekt sína, meðal annars haldið til verzlunar i sjoppu á staðnum. Að sögn Sigurjóns Scheving, lögregluþjóns á Reyðarfirði, höfðu þeir komið þangað i bil, sem stúlka ók. Hún var þó kappklædd, meira að segja i lopapeysu. Fólkinu var vísað frá Reyðarfirði og hélt þá upp á Fagradal, þar sem það gerði hinum öldruðu hverft við, sem fyrr segir. Seinna hélt það áfram för sinni um Austurland og lyktaði með því, að einn piltanna var tekinn ölvaður við akstur. Hann var þá að vísu i fötum. Fólkið er úr Reykjavík