Vitlausu veðri er spáð víða um land frá hádegi í dag. Óveðrinu fylgja hlýindi og asahláka. Gefnar hafa verið út appelsínugular og gular viðvaranir.
Lægð nálgast landið. Það gengur í suðaustanstorm og jafnvel rok. Ekki er gert ráð fyrir snjókomu nema til fjalla. Hitinn verður víða 4 til 10 stig í kvöld og allt að 14 stigum norðanlands í nótt.
Á morgun, laugardag, er spáð sunnan 15-23 m/s með rigningu eða slyddu. Dregur heldur úr vindi síðdegis. Veður versnar svo aftur síðdegis á sunnudaginn. Helgin er sem sagt í uppnámi fyrir þá sem vilja stunda útivist eða ferðalög um landið.