Marianne Faithfull lést London í gær, 78 ára að aldri. Hún fæddist árið 1946 í Hampstead. Mariannes starfaði sem leikkona og söngkona. Hún varð þekkt fyrir ábreiðu af laginu As Tears Go By sem vakti mikla athygli í Bretlandi árið 1964. Þekktasta hlutverk hennar var í kvikmyndinni The Girl On A Motorcycle árið 1968.
Hún var um tíma á árunum eftir 1960 kærasta Mick Jagger, söngvara Rolling Stones. Hún giftist þrisvar og skildi jafnoft. Fyrsti eiginmaður hennar var John Dunbar (1965-1966). Næstur var Ben Brierly (1979-1986). Þriðji eiginmaður hennar var Giorgio Della Terza (1988-1991).
Lífshlaup hennar var sumpart erfitt. Hún ánetjaðist heróíni og varð um hríð heimilislaus. Platan Broken English kom út árið 1979 og kom henni rækilega á kortið aftur.
Á löngum ferli starfaði hún m.a. með David Bowie, Lou Reed, Damon Albarn, Metallica sem og PJ Harvey og Nick Cave.
Marianne Faithfull glímdi við veikindi í lífi sínu. Hún barðist við lotugræðgi, brjóstakrabba og lungnaþembu sem rakin var til reykinga hennar um áratugaskeið. Þá fékk hún Covid árið 2020 og lá inni á spítala í þrjár víkur þar sem henni var vart hugað líf.
Hún lætur eftir sig einn son, Nicholas Dunbar.