Föstudagur 31. janúar, 2025
3.8 C
Reykjavik

Stefán Pálsson tengir við Dag Sigurðsson: „Stemningin gat orðið ansi stirð á göngum skólans“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Stefán Pálsson rifjar upp þegar hann var fenginn til að þjálfa Fjölbrautaskólann í Breiðholti í Morfís-ræðukeppninni þegar hann var á lokaári hjá Menntaskólanum í Reykjavík. Setur hann það í samhengi við svekkelsi margra með að Dagur Sigurðsson hafi slegið Ísland út úr HM í handbolta á dögunum.

Sagnfræðingurinn og gáfumennið Stefán Pálsson skrifaði færslu á Facebook þar sem hann talar um svekkelsi sumra vegna taps Íslands gegn Króatíu á HM í hanbolta í ljósi þess að Íslendingur þjálfar Króatana. Rifjar hann upp þegar hann var fenginn til að þjálfa FB í Morfís-ræðukeppninni, þegar hann var sjálfur á lokaárinu hjá MR.

Hefst færslan á eftirfarandi hátt: „Einhverjir voru að svekkja sig á að Dagur Sigurðarson hafi sem þjálfari Króata slegið okkur úr keppni. Ég tengi hins vegar heitt og innilega. Á lokaárinu mínu í MR var ég kominn í smá fýlu út í málfundafélagið (ekkert sem risti neitt djúpt samt) og hugsaði mig því ekki tvisvar um þegar FB hafði samband og bauð mér þjálfaradjobbið í MorfÍs.“

Stefán segir að svo hafi farið að MR og FB drógust saman í fyrstu umferð keppninnar og að stemingin hafi verið „ansi stirð“ á göngum skólans.

„Að sjálfsögðu drógust MR og FB saman í fyrstu umferð og stemningin gat orðið ansi stirð þegar maður hitti fólk tengt ræðuliðinu á göngum skólans þá vikuna. (Illskiljanleg teikningin af mér í útskrifarbókinni sýnir mig með vasa troðna af seðlum – sem er vísun í þetta óvenjulega ráðningarsamband.)“

Að lokum upplýsir Stefán lesendur sína um að FB hafi tapað en með litlum mun og því hafi aðallega verið um að kenna veikindi Lalla sjúkraliða.

„Við enduðum á að tapa en með miklu minni mun en nokkurn hefði órað fyrir og hefðum mögulega unnið ef Lalli sjúkraliði hefði ekki verið fárveikur og keppt útúrdópaður af öllu því sem læknirinn gat skrifað uppá, drekkt í dassi af Jägermaster. Áfram Dagur!“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -