Það er ekki aðeins á Íslandi sem fólk heldur framhjá mökum sínum en rússnesk eiginkona manns sem var að halda framhjá henni tók málin í sínar hendur og réðst á eiginmann sinn og ástkonu hans. Árásin átti sér stað fyrir utan karókíbar í Síberíu en þar sat konan fyrir eiginmanni sínum og frillu hans og réðst á þau þegar þau komu þaðan út. Árásin náðist á upptöku og sést konan ítrekað kýla eiginmann sinn áður en hún ræðst á hina konuna. Reif hún meðal annars í hár hennar og skellti haus hennar í vegg. Samkvæmt rússneskum fjölmiðlum hafði eiginmaðurinn sagt við konu sína að hann væri að fara úr bænum vegna vinnu en var í raun áfram í bænum með hinni konunni.