Davíð Goði Þorvarðsson og Fjóla Sigurðardóttir vilja 30 milljónir króna frá áhrifavaldinum Eddu Falak, samkvæmt lögmanni hennar, en þau unnu saman að hlaðvarpsþættinum Eigin Konur sem naut vinsælda fyrir nokkrum árum. Davíð Goði og Fjóla segja Eddu hafa svikið sig. Þá hafa þau gefið í skyn að Edda hafi beitt þau andlegu ofbeldi.
„Þær tekjur sem komu inn á samstarfstíma aðila voru samtals um 2,5 milljónir, eins og gögn bera glögglega með sér. Edda hefur frá upphafi verið tilbúin að greiða þeim stærstan hluta allrar þeirrar fjárhæðar en boð hennar hafa að mestu mætt þögninni og síðar auknum kröfum,“ sagði Sigrún Jóhannsdóttir, lögmaður Eddu Falak, við Vísi um málið.
Taka átti málið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í byrjun árs en samkvæmt heimildum Mannlífs vildu deiluaðilar reyna ná samkomulagi frekar en að fara með málið fyrir dómstól. Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður Davíðs og Fjólu, staðfesti í samtali við Mannlíf að þau væru ennþá að reyna komast að samkomulagi við Eddu.
Þá vildi Sigurður ekki tjá sig um orð lögmanns Eddu um að kröfur Davíðs og Fjólu væru óeðlilegar háar.