Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, hefur boðað til fundar á laugardaginn 8. febrúar og er búist við því að hún muni tilkynna framboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins.
Hingað til hefur aðeins Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir boðið sig fram en líklegt er að hörð barátta sé framundan muni Guðrún bjóða sig fram.
„Kæru vinir.
Nú styttist óðum í að sjálfstæðismenn komi saman á landsfundi til að skerpa á stefnu flokksins og velja sér nýja forystu. Þar munum við ræða um framtíðina, frelsi einstaklingsins og hvernig við tryggjum sterkt og frjálst samfélag til hagsbóta fyrir alla landsmenn.
Fyrir fjórum árum, eftir áratuga starf í atvinnulífinu, fann ég köllun til að bjóða fram krafta mína í þeirri viðleitni að móta íslenskt samfélag. Sú vegferð hefur verið krefjandi, lærdómsrík og gefandi. Ég hef notið hverrar stundar og hef lagt mig fram um að standa vörð um þau grunngildi sem við sjálfstæðismenn trúum á – frelsi, jafnrétti og rétt einstaklinga til að nýta krafta sína til fulls.