Miðvikudagur 5. febrúar, 2025
6.8 C
Reykjavik

Eldur vill fá miskabætur frá RÚV: „Farið mjög klúrum og ruddalegum orðum um kynfæri“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Eldur Smári Kristinsson, formaður Samtakanna 22 og frambjóðandi Lýðræðisflokksins, fer fram á miskabætur frá RÚV og Bergsteini Sigurðssyni fréttamanni vegna ummæla sem höfð voru um hann í þættinum Forystusætið sem var sýndur í fyrra.

Í þættinum ræddi Bergsteinn við Arnar Þór Jónsson, formann Lýðræðisflokksins, um aðkomu Elds að flokknum en hann var oddviti flokksins í Norðausturkjördæmi.

„Tölum einmitt um þjóna og þá sem þið veljið til þjónustu. Oddviti flokksins í Norðausturkjördæmi, Eldur Smári Kristinsson, hann er formaður Samtakanna 22, samtaka sem hafa verið sökuð um að ala á andúð í garð trans fólks, hefur verið fjarlægður af lögreglu úr grunnskóla fyrir að mæta þar í leyfisleysi, og mynda starfsfólk og börn, hann hefur sakað þau sem berjast fyrir réttindum trans fólks um barnaníð, þar á meðal nafngreinda íslenska baráttukonu, hann hefur líka þrástagast um að hún sé karl, farið mjög klúrum og ruddalegum orðum um kynfæri hennar á opinberum vettvangi…“

Við þessi ummæli er Eldur Smári ekki sáttur og fer fram á miskabætur.

Umdeildur formaður

Rétt er að taka fram að Samtökin 22 hafa verið kölluð haturssamtök af fólki sem stendur með trans samfélaginu. Anna Kristjánsdóttir, ein fyrsta trans kona Íslands, hefur sagt að eina sem samtökin hafi á stefnuskrá sinni sé að hatast út í trans fólk. Samtökin 22 segjast hins vegar vera baráttusamtök fyrir homma og lesbíur en tæplega 300 samkynhneigðir einstaklingar skrifuðu undir bréf árið 2023 þar sem var sagt að samtökin töluðu ekki fyrir hönd þeirra og væru ekki í raun ekki hagsmunasamtök fyrir samkynhneigt fólk.

Eldur var sömuleiðis sakaður um að hvatt Uglu Stefaníu Kristjönu Jónsdóttur, trans konu og aktívista, að fremja sjálfsvíg en hann neitaði því viðtali við Heimildina.

Reykjavíkurborg tilkynnti Eld Smára til lögreglunar á höfuðborgarsvæðinu fyrir að mæta í Langholtsskóla í leyfisleysi og taka starfsfólk upp á myndband árið 2023. Eldur talaði einnig í fyrra á ráðstefnu á vegum Genspect samtakanna en þau hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir níð í garð trans fólks og hafa hin virtu mannréttindasamtök Southern Poverty Law Center sagt Genspect vera haturssamtök. Þá kærðu Samtökin 78 Eld Smára í fyrra fyrir sjö ummæli sem hann hefur látið falla á undanförnum árum. Það mál er ennþá í rannsókn samkvæmt heimildum Mannlífs.

Mannlíf hafði samband við Bergstein vegna málsins en hann vísaði á Margréti Marteinsdóttur, skrifstofustjóra RÚV. Í svari hennar við fyrirspurn Mannlífs sagði hún að RÚV hafi ekki tekið afstöðu til málsins.

Eldur birti kröfu sína á Facebook

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -