Óveðrið sem gekk yfir landið í gær og nótt gekk niður á höfuðborgarsvæðinu. undir morgun. Nú er stund milli storma.
Rauðar viðvaranir taka gildi á ný frá því klukkan sjö. Óveðrið skellur í fyrstu á Austfjörðum og hálendinu.
Á Austfjörðum spáir suðvestan illviðri. Veðurhæðin verður samkvæmt spá 28-33 metrar á sekúndu. Í hviðum nær vindstyrkur inn yfir 50 metrum á sekúndu. Rauð viðvörun verður í gildi þar til klukkan 18.
Á höfuðborgarsvæðinu taka rauðar viðvaranir gildi klukkan 8 og verða í gildi til klukkan 13. Versta veðrið á Ströndum og Norðurlandi vestra. Það mun ganga yfir frá 10 til 15. Síðdegis verður allt fallið í ljúfa löð.
Gert er ráð fyrir ágætu veðri á laugardag en á sunnudag stefnir í slagviðri víða.