Reykjavíkurborg, í samstarfi við Háskóla Íslands, óskar eftir þátttöku í spurningakönnun sem er hluti af rannsókn sem snýr að venjum og hindrunum íbúa höfuðborgarsvæðisins í samgöngum og flokkun úrgangs segir í tilkynningu frá borginni.
Rannsóknin er hluti af alþjóðlegu styrktarverkefni sem ber heitið „Tilraunaborgir; Þrætt í gegnum þrengsli,“ og miðar verkefnið að því að finna leiðir til að draga úr losun frá vegsamgöngum og úrgangi í borginni.
„Í rannsókninni verður sérstaklega skoðað hvernig venjur og hindranir hafa áhrif á ferðahegðun og flokkun úrgangs. Niðurstöður munu nýtast við þróun og prófun aðgerða sem geta stutt við breyttar venjur í samræmi við þarfir íbúa.“
Geta íbúar höfuðborgarsvæðisins skráð sig til leiks og tekið þátt í þessari könnun um málið en hægt er að skrá sig frá og með deginum í dag. Borgin vill meina að þátttakendum gefist tækifæri til að hafa áhrif á framtíðaraðgerðir borgarinnar í umhverfismálum og munu tveir einstaklingar sem taka þátt verða dregnir út til að fá 25 þúsund króna verðlaun í formi gjafakorta.