Jóhann Páll Jóhannsson, orkumálaráðherra Samfylkingar, átti stórleik í ræðustól Alþingis undir stefnuræðu forsætisráðherra. Hann hjó á báðar hendur og skammaði stjórnarandstöðuna.
Verstu útreiðina fékk Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, sem sagði ranglega í sinni ræðu að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefði í engu nefnt kennara í sinni ræðu. „Og reyndar beit hann höfuðið af skömminni með því að ljúga því blákalt að þingheimi að hæstvirtur forsætisráðherra hefði ekki ávarpað kennara í ræðu sinni. Hefði ekki vikið að menntamálum eða ávarpað kennara þarna úti, sem hún gerði svo sannarlega. Það er lágt risið á stjórnarandstöðunni hér í kvöld,“ sagði Jóhann Páll í ræðu sinni.
Ræður stjórnarandstöðunnar voru daufar ef undan er skilin ræða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, sem llér stjórnarliða hafa það óþvegið. Pólitísk feigð hinna föllnu leiðtoga, Sigurðar Inga og Þórdísar Kolbrúnar Reykjafjörð Gylfadóttur liggur í loftinu …