Miðvikudagur 12. febrúar, 2025
5.8 C
Reykjavik

Sigríður Andersen vildi verða EvrópumeistarI: „Seinni tvær lyfturnar voru því miður dæmdar ógildar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, keppti í gær á Evrópumóti öldunga í kraftlyftingum í Frakklandi í framhaldi þess að hún varð Íslandsmeistari í lyftingum öldunga. Sigríði er margt til lista lagt. Hún er alþingismaður Miðflokksins eftir að hafa snúið baki við Sjálfstæðisflokknum sem gerði hana á sínum tíma að dómsmálaráðherra. Í seinni tíð hefur hún lagt stund á lyftingar með frábærum árangri. En FRakklandsferðin gekk þó ekki að óskum. Vísir hefur eftir Kraftfélaginu að áform hennar um árangur á Evrópuvísu hafi misheppnast,
„Hlutirnir gengu ekki alveg upp hjá Sigríði en Kraftfélagið segir að þetta hafi verið stöngin út dagur hjá henni. Þrjár af lyftum hennar voru dæmdar ógildar og þá ætlaði hún sér aðeins of mikið í réttstöðulyftunni,“ er haft eftir Kraftfélaginu.

Í  hnébeygju tók hún Sigríður tvær gildar lyftur, 102,5 kíló og svo 107,5 kíló í þriðju umferð eftir að önnur lyftan var dæmd ógild. 107,5 kílóa lyftan var nýtt persónulegt met.

Keppnin skilaði henni nýju persónulegu meti í hnébeygju, bekkpressu og í samanlögðu.

„Þrátt fyrir góðar framfarir þá var þetta því miður stöngin út dagur. En hún tekur með sér mikla reynslu af sínu fyrsta alþjóðlega móti og er ekki líkleg til annars en að sækja þessi kíló sem vantaði upp á strax á næsta móti,“ segir í yfirlýsingu Kraftfélagsins.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -