Fimmtudagur 20. febrúar, 2025
8.8 C
Reykjavik

Krókódíll tætti handlegg gamals manns í sig – MYNDBAND

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Stundum er auðvelt að vera vitur eftir á en gamall maður sem var illa bitinn af krókódíl í Indónesíu hefði sennilega átt að vita betur.

Maðurinn, sem var að ferðast um landið, ætlaði að gefa krókódíl í dýragarðinum Cimory Dairyland að borða þegar villidýrið beit harkalega í handlegg mannsins og kastaði honum til og frá. Fólk sem stóð manninum nærri öskraði þegar það sá hvað gerðist. Dýrinu hafði verið bjargað eftir mikið flóð í síðustu viku.

Til allrar hamingju náðist að bjarga manninum úr kjafti krókódílsins en samkvæmt fjölmiðlum í Indónesíu er handleggur hans mjög illa farinn. Hann hugsar sig eflaust tvisvar um ef honum býðst annað tækifæri til að gefa krókódíl að borða.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -